Velkomin í sirkus

Velkomin í sirkus

Hafirðu farið í tívolíið í Kaupmannahöfn gastu mögulega upplifað þig hafa komið þar við, verandi á árshátíð í Klébergsskóla hjá 1.-7. bekk á fimmtudaginn var.

 

 

Nemendur 4.-5. bekkja léku þar sirkus-listir sínar með öllum sínum kostum og kynjum við mikla kátínu áhorfenda. 

6.-7. bekkurinn tróð upp með bútum úr uppáhaldslögum foreldra þeirra við ekki minni hrifningu áhorfenda og 1. -3. bekkur léku hluta úr leikritinu Ávaxtakarfan og sungu af krafti.

Nokkrir nemendur ýmist spiluðu eða sungu milli annarra hópatriða og kynnarnir úr 7. bekk reittu af sér brandarana þess á milli. Úr varð þessi  líka skemmtunin að unun var að.

Takk fyrir skemmtunina krakkar.