Stóra upplestrarhátíðin 2026

stóra upplestrarhátíðin 2026-hópurinn

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar var haldin í Grafarholtskirkju þann 18. mars en undirbúningur hefur staðið yfir í allan vetur og hófst hann formlega á Degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember. 

Það voru þau Birgir Aðalsteinn og Ísabel Katla úr 7. bekk sem voru fulltrúar Klébergsskóla að þessu sinni. Þau lásu valda kafla úr bókinni Fjársjóðsleit í Granada eftir Ólaf Pál Jónsson ásamt ljóðum um fugla og ljóðum að eigin vali. Þau stóðu sig með hinni mestu prýði og við óskum þeim til hamingju með flutninginn og þökkum fyrir þeirra framlag.