Hagnýtar upplýsingar

Opnunartími skólans

Opnunartími Klébergsskóla er kl. 7:45-16:30 virka daga.

Skrifstofa

Skrifstofa Klébergsskóla er opin mánudaga til fimmtudaga kl. 8:00-15:30 og föstudaga kl. 8:00-13:00.

Mötuneyti

Í Klébergsskóla er starfrækt mötuneyti fyrir nemendur og starfsfólk Klébergsskóla og leikskólans Bergs. Mataráskrift í hádegismat er gjaldfrjáls fyrir nemendur, en nauðsynlegt er að skrá þann sem vill vera í áskrift inn á vala.is og eins þarf að merkja við hvort barn á að vera í morgunmat, en greitt er fyrir hann. Verð fyrir áskrift í morgunmat er 2.683kr./pr.mán. haustið 2026.

Ef nemandi hefur matarofnæmi þarf að skrá það og sýna fram á það með vottorði frá lækni. Vottorð um matarofnæmi þarf að endurnýja árlega. 

Skrá þarf sérstaklega ef nemandi vill vera í morgunmat og eins ef viðkomandi vill vera í hádegismat á föstudögum, en nemendur sem þurfa að fara heim með skólarútu á föstudögum ná ekki að fara í hádegismat á föstudögum.

Mötuneytið býður upp á heilnæmt og gott fjölbreitt fæði. Ef nemandi kýs frekar að koma með nesti en vera í áskrift í mötuneytinu biðjum við foreldra að gæta þess að nestið sé heilnæmt og gott fjölbreitt fæði.

Forfallatilkynningar 

Tilkynna skal veikindi og forföll fyrir byrjun skóladags í gegnum mentor.is

Sækja um leyfi

Við biðjum foreldra og forráðamenn vinsamlegast um að sækja um leyfi fyrirfram fyrir barn sitt. Sótt er um heilsdagsleyfi eða lengra leyfi í Mentor en haft er samband í síma 411 7170 ef um leyfi í staka tíma er að ræða eða að senda okkur póst á netfangið Klebergsskoli@reykjavik.is