Vel heppnuð skíðaferð hjá unglingunum

Skíðaferð unglingastigs

,,Ég hef ekki skemmt mér svona vel lengi" gall í einum starfmannanna sem fóru með unglingunum í Klébergsskóla í skíðaferð í Bláfjöll í síðustu viku.

 

Það var gott skíðafæri framan af ferðinni og fallegt veður. Svo var nú gott að komast í skálann og hvíla sig, fá sér eitthvað gott að borða og eiga skemmtilegan tíma með hópnum.