Þemadagar og opið hús 20. nóvember
Í vikunni hafa nemendur Klébergsskóla unnið í þemavinnu þvert á árganga.
Þau hafa verið að vinna verkefni þar sem þau leika sér með íslenskuna á mismunandi hátt, auk þess að vinna að verkefnum sem snúa að ,,Grænfánanum" og Degi mannréttinda Barna sem er þennan dag 20. nóvember.
Opið hús föstudaginn 20. nóvember
Foreldrum og forráðamönnum gefst tækifæri á að sjá afrakstur þemavinnu nemenda sem byrjar á stuttri söngstund í sal Klébergsskóla kl. 8:15 og svo er hægt að skoða verkefnin inni í stofum og á göngum sem nemendur hafa verið að búa til, spil og ,,leikföng", teikningar og annar afrakstur þemavinnunnar.
Þegar nemendur hafa farið um með foreldrum sínum og skoðað það sem þau hafa verið að vinna að fara þau heim með foreldrum.
,,Opna húsið" lokar kl. 10 og þá er skóladeginum lokið. Ekki er skólaakstur þennan dag.
Þau börn sem eru í frístundastarfi eftir skóla á föstudögum geta farið í Kátakot eftir opna húsið.
VERIÐ VELKOMIN!