Skólasetning 24. ágúst kl. 8:30
Klébergsskóli verður settur í 98. sinn 24. ágúst kl. 8:30 í sal Klébergsskóla.
Nemendur sem fara í 2.-10. bekk mæta á skólasetninguna ásamt foreldrum og fara svo í umsjónarstofur með sínum umsjónarkennara.
Foreldrar nemenda sem eru að byrja í 1. bekk fá boð í viðtöl, þar sem nemandi og foreldrar koma saman til umsjónarkennara.
Skólastarf hefst samkvæmt stundatöflu þriðjudaginn 25. ágúst 2026 kl. 8:15
Hlökkum til að sjá ykkur!