Opið er fyrir umsóknir í Tónlistarskólann á Klébergi fyrir skólaárið 2026-2027

Nú er búið að opna fyrir umsóknir í Tónlistarskólann á Klébergi fyrir skólaárið 2026-2027. Sótt er um í gegnum vefsíðu Klébergsskóla undir síðunni Tónlistarskóli.

Umsóknarfrestur er til loka 24. ágúst 2026. Haft verður samband við upphaf annar um stöðu umsóknar.

Nemandi sem var í tónlistarnámi á síðustu önn fær forgang, ef sótt er um fyrir viðkomandi áður en frestur til umsóknar rennur út, annars gildir reglan: Fyrstur kemur fyrstur fær. 

Ef sótt er um á haustönn gildir umsóknin út skólaárið nema sagt sé upp fyrir áramót. Ef umsókn berst eftir að búið er að úthluta öllum plássum gildir hún fram að vorönn sama skólaárs og ef eitthvað losnar fær sá næsti á lista inngöngu út þá önn.