Keilulið kvenna ÍR- Píurnar (Dagbjört okkar) Bikarmeistarar í keilu KLÍ 2026

Dagbjört (ÍR-Píurnar) bikarmeistarar 2026 í keilu

Dagbjört okkar í 10. bekk er í keiluliðinu ÍR-Píurnar. Þær kepptu um bikarinn á keilumóti Keilusambands Íslands 2026 og unnu bikarinn.

Ætla má að þær séu yngsta kvennaliðið til að hampa svo stórum titli í liðakeppni á Íslandi. Stelpurnar eru fæddar á árunum 2010 til 2012.

Fjallað er um keppnina á vef KLÍ

Dagbjört talaði á fundi skóla- og frístundaráðs fyrir hönd ungmennaráðsins

Dagbjört fékk tækifæri til að tala á fundi skóla- og frístundaráðs vegna vaxandi ofbeldis hjá ungmennum. Morgunblaðið hafði svo samband við hana og tók viðtal við hana um efni erindisins. MBL.is