Forseti Íslands heimsótti Klébergsskóla á dögunum

Frú Halla Tómasdóttir forseti í heimsókn í Klébergsskóla

Nemendur 6.-7. bekkja hafa verið að læra um alla forseta lýðveldisins og buðu Forseta Íslands frú Höllu Tómasdóttur í heimsókn til að sjá umfjöllun þeirra á föstudagssamveru.

 

Hún þekktist boðið

Halla þáði boðið og mætti með fríðu föruneyti. Með henni í för var Bryndís Guðmundsdóttir talmeinafræðingur sem kynnti vefsíðu um lestur og hljóð sem verður opnaður formlega fyrr en varir.