Bekkjarmyndatökur 1., 4., 7. og 10. bekkja 7. maí

Þá er komið að hinum árlegu bekkjarmyndatökum hjá 1., 4., 7. og 10. bekk. Þær verða að morgni dags fimmtudaginn 7. maí.

Pálmi í Litmynd sér um myndatökurnar.

Bekkja- og einstaklingsmyndatökur

Auk bekkjarmyndataka verða teknar myndir af hverjum nemanda í þessum fjórum bekkjum. Foreldrar fá svo tengil á myndirnar af sínu barni og geta svo valið úr einhverjum myndum.