Aðalfundur foreldrafélags Klébergsskóla og fræðsla
Foreldrafélag Klébergsskóla blæs til aðalfundar þriðjudaginn 6. október kl. 19:30 í Klébergsskóla. Léttar veitingar verða í boði.
Happdrætti - dregið verður úr nöfnum þeirra sem mæta.
Núverandi stjórn gefur áfram kost á sér.
Fræðsla frá stafrænni velferð
Fræðsla um þær aðferðir sem tæknifyrirtæki nota til að halda athygli okkar og barnanna okkar í leikjum og samfélagsmiðlum, hvað beri að varast og hvaða leiðir foreldrar hafa til að stuðla að heilbrigðu jafnvægi í skjánotkun.
Mætum öll og eigum huggulega stund.
Hlökkum til að sjá ykkur
Foreldrafélag Klébergsskóla