HR bauð í tæknikynningu

HR bauð á tæknikynningu

Á miðvikudaginn fór hluti nemenda í 9. og 10. bekk á viðburðinn Strákar, stálp & tækni í Háskólanum í Reykjavík. 

Þar fóru nemendur í tvær vinnustofur, fyrst í stúdíó í HR þar sem nemendur fengu að spreyta sig á tæknibúnaði sem er notaður til að framleiða hlaðvörp og annað kennsluefni við HR. Síðan fengu þeir góða kynningu á viðskipta- og hagfræði en rúsínan í pylsuendanum var fyrirtækjaheimsókn í Landhelgisgæsluna. Ferðin gekk mjög vel og nemendur voru til fyrirmyndar.