Gleðilega hátíð!

Jasmine listamaður myndarinnar

Við óskum ykkur gleðilegra jóla og velfarnaðar á nýju ári og þökkum árið sem er að líða.

Jólakort Klébergsskóla 2025

Það er orðin hefð fyrir því að hafa mynd af verki einhvers nemanda í Klébergsskóla með jólakveðju frá skólanum. Jasmine Zmudzinska nemandi í 10. bekk hefur leyft okkur að hafa mynd eftir hana á jólakortinu í ár og kunnum við henni bestu þakkir fyrir, enda mikill listamaður á ferð.

Myndin er teiknuð með olíukrít á svart karton.