Esjuganga í Blikdalnum

Esjuganga Blikdalur

Nemendur 1.-10. bekkjar Klébergsskóla fóru í sína árlegu Esjugöngu á föstudaginn var. Að þessu sinni fóru 4.-10. bekkurinn Blikdalinn á meðan yngsta stigið fór í Mógilsá.  Mathias í 10. bekk gerði sér lítið fyrir og fór tvisvar sinnum upp Blikdalinn.

 

Sólin skein í heiði og flestir nemendur sem gengu Blikdalinn tóku áskoruninni um að komast upp á toppinn.