Sóldís Inga í 3. sæti Evrópumeistaramóts U21 í bogfimi 2026

Sóldís Inga 10. bekk Klébergsskóla bronshafi á EM U21 í bogfimi

Sóldís okkar í 10. bekk keppti í bogfimi á Evrópumeistaramóti U21 í Búlgaríu um miðjan febrúar.  Hún vann til bronsverðlauna með sínu liði.

Fyrstu verðlaun Íslands á EM í greininni

 Það er gaman að segja frá því að þetta eru fyrstu verðlaun Íslands í trissuboga kvenna U21 í sögu íþróttarinnar.

Hægt er að sjá meiri umfjöllun um úrslitin frá þessu móti í Búlgaríu https://archery.is/soldis-inga-med-brons-a-em-fyrstu-verdlaun-islands-a-em-i-greininni/